Mega koma til Bandaríkjanna

AFP

Bandarískur áfrýjunardómstóll hefur hafnað tilraun Bandaríkjaforseta Donalds Trump um að endurvekja bann við komu fólks frá sjö löndum til Bandaríkjanna.

Sam­kvæmt ferðabann­inu gátu rík­is­borg­ar­ar sjö landa ekki ferðast til Banda­ríkj­anna þó að þeir væru með gild­ar vega­bréfs­árit­an­ir. Átti bannið að gilda í að minnsta kosti 90 daga fyr­ir al­menna borg­ara en 120 daga fyr­ir flótta­menn.

Viku eft­ir að það var sett á komst al­rík­is­dóm­ari í Seattle að þeirri niður­stöðu að bannið bryti í bága við stjórn­ar­skrá og setti lög­bann á það, sem gild­ir um allt landið. Lög­bannið er þó aðeins tíma­bundið eða þar til dóm­stól­ar hafa fjallað um kæru rík­is­sak­sókn­ara Washingt­on og Minnesota sem telja bannið bein­ast gegn múslim­um og sé því ekki í sam­ræmi við stjórn­ar­skrá lands­ins. 

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll­inn í San Francisco, komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöldi að ekki væri ástæða til þess að afnema ákvörðun alríkisdómarans og féllu atkvæða allra dómara, alls þriggja, á sama hátt – að þjóðaröryggi væri ekki stefnt í hættu.

Trump svaraði ákvörðun dómstólsins á Twitter og segir að þjóðaröryggi sé stefnt í hættu og að hann myndi fara áfram með málið á æðra dómstig. Það er hæstarétt Bandaríkjanna.

Ákvörðun dómstólsins í gær þýðir að fólk frá Íran, Írak, Líbýu, Sómalíu, Súdan, Sýrlandi og Jemen getur komið til Bandaríkjanna óáreitt sé það með vegabréfsáritun. Jafnframt geti flóttamenn, alls staðar að úr heiminum, komið til landsins. 

Áfrýjunardómstóllinn telur að engar sönnur séu fyrir því að fólk frá þessum sjö tilteknu ríkjum hafi framið hryðjuverkaárás á bandarískri grund. 

Frétt BBC

Þessi fjölskylda er frá Jemen – hún má koma til …
Þessi fjölskylda er frá Jemen – hún má koma til Bandaríkjanna þar sem þau eru með vegabréfsáritun til landins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert