Mikil þróun í hernaðarframleiðslu Kína

Mynd frá í desember sem sýnir kínverskar J-15 herflaugar á …
Mynd frá í desember sem sýnir kínverskar J-15 herflaugar á Liaoning flugmóðurskipi Kínverja. AFP

Hernaðarframleiðsla Kínverja nálgast hraðfluga tæknistig vesturlanda og útgjöld Kínverja til hernaðar- og varnarmála nema samtals um þriðjungi af heildarútgjöldum Asíuríkja til málaflokksins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar International institute for strategic studies (IISS), sem birt var í dag.

Útgjöld Kína til málaflokksins voru á síðasta ári 145 milljarðar dala. Er það um 1,8 sinnum hærri upphæð heldur en nágrannaríkin Suður-Kórea og Japan verja í hernaðar- og varnarmál samtals.

Í heild jukust hernaðarútgjöld í Asíu á árunum 2012-2016 um 5-6%  samkvæmt skýrslunni. Heildarútgjöld á heimsvísu drógust þó saman um 0,4% og skýrist það aðallega af minni útgjöldum í Miðausturlöndum.

Samkvæmt skýrslunni er hernaðarmáttur Kína að aukast hraðfluga.
Samkvæmt skýrslunni er hernaðarmáttur Kína að aukast hraðfluga. AFP

Formaður IISS sagði við kynningu skýrslunnar að framþróun Kína á sviði hernaðarframleiðslu þýddi að vesturlönd gætu ekki lengur tekið yfirburðarstöðu sinni á þessum vettvangi sem sjálfsögðum. Þá sagði hann Kína einnig horfa til þess að selja fleiri vopn erlendis og að Kína væri að þróa eldflaug sem yrði sú langdrægasta í heimi.

Bent er á að á síðustu árum hafi þróunin verið sú að vopnaútflutningur Kína til ríkja Afríku væri í auknum mæli háþróuð kínversk vopn í stað gamalla vopna frá Sovéttímanum. Þannig hafi vopnaðir drónar frá Kína meðal annars verið seldir til Sádí-Arabíu og Nígeríu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert