Dæmdur í 34 ára fangelsi

Það verður langt þangað til Ian Stewart gengur laus á …
Það verður langt þangað til Ian Stewart gengur laus á ný. AFP

Ian Stewart, unnusti rithöfundarins Helen Bailey, var í dag dæmdur í 34 ára fangelsi fyrir að hafa myrt hana í fyrra.

Stewart byrlaði unnustu sinni lyf og kæfði hana áður en hann fleygði líki henn­ar í for­arþró.

Ian Stew­art, sem er 56 ára, hafði neitað því að hafa myrt Helen Bailey á heim­ili þeirra í Royst­on í Hert­ford­skíri á Englandi í apríl í fyrra í von um að kom­ast yfir auðæfi henn­ar sem eru met­in á 4 millj­ón­ir punda, eða um 550 millj­ón­ir króna, að því er kemur fram í frétt BBC.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert