Trump óskynsamur og óheiðarlegur

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Fylgi Donalds Trump Bandaríkjaforseta er sögulega lágt samkvæmt skoðanakönnunum.

Fram kemur í frétt AFP að 38% bandarískra kjósenda telji þannig Trump hafa staðið sig vel sem forseti samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Quinnipiac-háskóli í Connecticut-ríki gerði og birtar voru í gær en 55% að hann hafi staðið sig illa. Þetta sé fordæmalaust svo snemma í forsetatíð Bandaríkjaforseta. 

Ennfremur telja 63% kjósenda að Trump sé ekki skynsamur og 55% að hann sé ekki heiðarlegur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert