Vilja ekki þjóðaratkvæði um ESB

Kaupmannahöfn.
Kaupmannahöfn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þrír stjórnmálaflokkar sem eiga fulltrúa á danska þinginu hafa myndað með sér bandalag sem er ætlað að koma í veg fyrir að boðað verði til þjóðaratkvæðis í Danmörku um áframhaldandi veru landsins í Evrópusambandinu með hliðstæðum hætti og gert var í Bretlandi.

Flokkarnir þrír, Sósíalíski vinstriflokkurinn, Radikal venstre og umhverfisflokkurinn Alternativet, telja nauðsynlegt að útiloka þjóðaratkvæði um veruna í Evrópusambandinu til þess að gera alþjóðlegum fjárfestum auðveldara með að vita hvað framtíðin beri í skauti sínu í Danmörku sem aftur skipti miklu máli fyrir danskt efnahagslíf samkvæmt frétt Thelocal.dk.

Flokkarnir þrír vonast til þess að fá aðra stjórnmálaflokka á danska þinginu sem hlynntir eru áframhaldandi veru Danmerkur í Evrópusambandinu til þess að heita því að slíkt þjóðaratkvæði verði ekki haldið. Takist það verða aðeins tveir stjórnmálaflokkar sem styðja þjóðaratkvæði, Danski þjóðarflokkurinn og vinstriflokkurinn Einingarlistinn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert