FBI segir ásakanirnar rangar

James Comey forstjóri FBI.
James Comey forstjóri FBI. AFP

Forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, segir að ásakanir Donalds Trump forseta, um að Barack Obama hafi látið hlera síma hans, séu rangar. Þetta kemur fram í New York Times í kvöld. 

James Comey, forstjóri FBI, hefur beðið dómsmálaráðuneytið að leiðrétta órökstuddar ásakanir Trumps opinberlega, að því er heimildarmenn New York Times herma. Ráðuneytið hefur ekki orðið við því.

Comey fór fram á þetta í gær því hann telur engar sannanir fyrir hendi sem styðji ásakanir Trumps sem m.a. lúta að því að FBI hafi brotið lög.

Trump lét dæluna ganga á Twitter í gær og ásakaði forvera sinn í starfi um að hafa látið hlera síma sína í aðdraganda forsetakosninganna í nóvember. Hann kallaði Obama m.a. „vondan eða veikan mann“.

Talsmaður Obama segir að ásakanirnar eigi ekki við nein rök að styðjast. Þær séu einfaldlega rangar. 

Þingnefnd mun rannsaka ásakanir Trumps í tengslum við rannsókn sína á ásökunum í garð ráðgjafa Trumps um að hafa átt í samskiptum við Rússa í aðdraganda kosninganna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert