Þingnefnd mun rannsaka ásakanir Trumps

Donald Trump og Barack Obama kveðjast við þinghúsið er sá …
Donald Trump og Barack Obama kveðjast við þinghúsið er sá fyrrnefndi sór embættiseiðinn. AFP

Þingnefnd mun rannsaka ásakanir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að forveri hans í starfi, Barack Obama, hafi látið hlera síma hans í aðdraganda kosninganna í nóvember. Þetta staðfestir formaður nefndarinnar.

Nefndin sem um ræðir hefur það hlutverk að rannsaka mál er lúta að meintum njósnum. Hún er nú þegar að rannsaka meint afskipti Rússa að forsetakosningunum í landinu.

Repúblikaninn Devin Nunes, formaður nefndarinnar, segir í yfirlýsingu að nefndin muni rannsaka hvort ríkisstjórnin hafi framkvæmd eftirlit með frambjóðendum í kosningunum eða einhverjum þeim tengdum. Hann nefndi hvergi ásakanir Trumps um slíkt beinlínis á nafn.

Trump setti ásakanir sínar fram í fjölmörgum færslum á Twitter í gær þar sem hann sagði Obama „vondan eða veikan mann“. Trump færði engin rök fyrir ásökunum sínum en sagðist hafa komist að málinu nýverið.

Trump kallaði eftir því í morgun að þingið myndi láta rannsaka málið. 

Talsmaður Obama segir að ásakanir séu með öllu ósannar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert