Stjórnvöld sek um stríðsglæpi

Ain al-Fijeh vatnsaflsstöðin
Ain al-Fijeh vatnsaflsstöðin AFP

Sýrlensk stjórnvöld vörpuðu sprengjum vísvitandi á vatnsuppspretturnar Ain al-Fijeh í desember sem þýddi að yfir fimm milljónir íbúa í höfuðborginni, Damaskus, voru án vatns.  Þetta er niðurstaða skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem segir árásirnar stríðsglæpi. Á morgun eru sex ár síðan stríðið í Sýrlandi hófst.

Umfjöllun mbl.is um stríðið í Sýrlandi og afleiðingar þess

Rannsóknarnefnd SÞ í málefnum Sýrlands kemst að þeirri niðurstöðu að flugher Sýrlands hafi gert árásirnar sem séu stríðsglæpir. Á sama tíma er það niðurstaða nefndarinnar að ekkert sé hæft í ásökunum sýrlenskra stjórnvalda um að uppreisnarmenn hafi mengað vatnið. 

AFP

Stjórnvöld héldu því fram að uppreisnarmenn hefðu eyðilagt Ain al-Fjjeh vatnslindirnar í baráttunni um yfirráðin í Wadi Barada-dalnum. Það er lygi samkvæmt skýrslunni en sýrlenski flugherinn gerði að minnsta kosti tvær loftárásir á vatnslindirnar. 

Í skýrslunni kemur einnig fram að flugher Sýrlands hafi einnig gerst sekur um stríðsglæp þegar sprengjum var varpað á skóla í Idlib-héraði í október. Hingað til hafa stjórnvöld staðfastlega neitað því að hafa verið þar að verki.

AFP

Uppreisnarmenn og vígasamtök eru á sama tíma sökuð um að hafa ráðist á almenna borgara með því að skjóta úr fallbyssum á óskilgreind skotmörk með þeim afleiðingum að tugir almennra borgara særðust.  

Bærinn Ariha í Idlib.
Bærinn Ariha í Idlib. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert