McDonalds „réðst“ á Trump á Twitter

McDonalds rannsakar málið.
McDonalds rannsakar málið. AFP

Skyndibitarisinn McDonalds rannsakar hvernig á því stendur að Twitter-reikningur fyrirtækisins sendi Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, móðgandi skilaboð fyrr í dag.

Talið er að einhverjum hafi tekist að hakka sig inn á Twitter og sent skilaboðin: „Þú ert viðurstyggileg afsökun fyrir forseta og við myndum elska að fá Barack Obama aftur, þú ert líka með litlar hendur.“

Skjáskot/BBC

McDonalds greindi frá því á Twitter skömmu síðar að skilaboðunum hefði verið eytt. „Við eyddum tístinu og erum að rannsaka málið,“ kom þar fram.

Donald Trump.
Donald Trump. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert