„Twitter er frábært“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er með 26 milljónir fylgjenda á …
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er með 26 milljónir fylgjenda á Twitter. AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur komið Twitter-notkun sinni til varnar og sagt að hugsanlega væri hann ekki forseti ef það væri ekki fyrir samfélagsmiðilinn.

Twitter-færslur forsetans hafa vakið athygli en hann tístir bæði oft og stundum er hann mjög æstur í færslum sínum. Í viðtali við Fox News í gær sagði Trump að Twitter gerði honum kleift að „sneiða framhjá óheiðarlegum fjölmiðlum“ en forsetinn er jafnframt duglegur við að gagnrýna fjölmiðla á Twitter.

„Ég fæ svo vitlausa og óheiðarlega umfjöllun,“ sagði  Trump og nefndi sérstaklega fréttastofuna CNN og þrjár stærstu bandarísku fréttastofurnar, ABC, CBS og NBC í því samhengi. Trump vildi hinsvegar ekki gagnrýna Fox News og sagði fréttastofuna hafa verið sanngjarna gagnvart sér. 

„Stór hluti fjölmiðla eru óheiðarlegir. Ég er með næstum því 100 milljónir fylgjenda á Twitter, Facebook og Instagram,“ sagði hann. „Ég er með mína eigin fjölmiðla.“

Forsetinn er með rúmlega 26 milljónir fylgjendur á Twitter og talar hann fallega um samfélagsmiðilinn. „Þegar ég segi eitthvað, hafa fjölmiðlar ekki rétt eftir mér. Twitter er frábært fyrir mig.“

Það vakti mikla athygli fyrr í mánuðinum þegar Trump hélt því fram á Twitter að Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefði komið hlerunarbúnaði fyrir í Trump turninum í New York þar sem Trump bjór áður en hann flutti í Hvíta húsið.

Engar sannanir hafa fundist sem styðja mál forsetans en málið er í rannsókn af sérstakri þingnefnd. Trump sagði hinsvegar í samtali við Fox News að Hvíta húsið myndi birta sannanir „mjög fljótlega“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert