Landamæraveggurinn kominn í útboð

Veggurinn verður ekkert fúsk en strangar kröfur eru gerðar um …
Veggurinn verður ekkert fúsk en strangar kröfur eru gerðar um þol hans og útlit. AFP

Hann verður að vera hár, ókleifur og álitlegur fyrir augað Bandaríkjamegin. Þannig er fjallað um landamæravegg Donald Trump í útboðsauglýsingu. Engar kröfur eru gerðar um útlit veggjarins Mexíkómegin.

Útboðið var auglýst á föstudag en verktakar hafa tvær vikur til að bjóða í verkið. Um er að ræða eitt stærsta byggingarverkefni á vegum hins opinber í sögu Bandaríkjanna.

Veggurinn verður að vera að minnsta kosti 5,5 metra hár og ókleifur án stiga. Þá ætti hönnun hans að gera notkun klifurbúnaðar til að komast yfir illmögulega. Enn fremur þarf að vera næsta ómögulegt að komast gegnum hann eða undir, samkvæmt verklýsingu.

Komi til þess að einhver reyni að komast gegnum vegginn með einhvers konar vélum eða verkfærum þarf hann að standast álagið í að minnsta kosti 30 mínútur en helst fjóra klukkutíma.

Veggurinn skal vera í fallegum lit og falla inn í umhverfið Bandaríkjamegin, segir enn fremur. Í útboðslýsingunni er ekkert fjallað um útlit veggjarins Mexíkómegin.

Nokkrir aðilar verða valdir til að byggja 9 metra langa prótótýpu en kostnaður við hverja þeirra er áætlaður munu nema um 21-54 milljónum. Veggurinn allur mun kosta bandaríska skattgreiðendur 10 til 25 milljarða Bandaríkjadala.

CNN sagði frá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert