Árásarmaðurinn var undir eftirliti MI5

Theresa May forsætisráðherra greindi þingheimi í dag frá því að …
Theresa May forsætisráðherra greindi þingheimi í dag frá því að árásarmaðurinn hefði verið breskur. AFP

Árásarmaðurinn sem varð þremur að bana í nágrenni Westminster í gær er hann ók inn í hóp fólks og stakk lögreglumann til bana var breskur. Breska leyniþjónustan MI5 hafði þá haft manninn undir eftirliti fyrir nokkrum árum vegna öfgakenndra og ofbeldishneigðra skoðana hans.

Þetta sagði Theresa May forsætisráðherra Bretlands í breska þinginu í dag. „Maðurinn fæddist í Bretlandi ... og fyrir nokkrum árum var hann til rannsóknar hjá MI5 þar sem áhyggjur vöknuðu vegna ofbeldisfullra og öfgakenndra skoðana,“ sagði May. Maðurinn var hins vegar ekki lengur undir smásjá leyniþjónustunnar og að engar vísbendingar hafi borist um fyrirætlan mannsins áður en árásin var gerð.

Sky fréttastofan segir May þá hafa sagt lögreglu einnig hafa þekkt til mannsins.

Átta hafa verið hand­tekn­ir í tengsl­um við árás­ina, en hundruð lög­reglu­manna unnu í alla nótt að rann­sókn máls­ins. Hús­leitir hafa þá verið gerðar á sex stöðum í Birmingham, London og öðrum stöðum í landinu vegna rannsóknarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert