Sjö handteknir í tengslum við árásina

Vopnaðir lögreglumenn við Whitehall í kjölfar árásarinnar. Sjö hafa verið …
Vopnaðir lögreglumenn við Whitehall í kjölfar árásarinnar. Sjö hafa verið handteknir. AFP

Átta hafa verið handteknir í tengslum við hryðjuverkaárásina í London í gær, þar sem maður varð þremur að bana og særði yfir fjörutíu til viðbótar er hann ók bíl eftir gangstétt og að breska þinghúsinu.  

Vopnuð lögregla lokaði af nokkrum götum í borginni Birmingham nú í morgun og gerði þar húsleit. Voru handtökurnar gerðar í kjölfar húsleitanna að því er fram kemur á fréttavef BBC.

Sky-fréttastofan sem greindi fyrst frá húsleitinni, hefur eftir vitni sem vinnur í nágrenni Hagley Road að árásarmaðurinn hafi búið í húsi í götunni þar sem leitað var. „Maðurinn frá London bjó hérna. Þeir komu og handtóku þrjá menn,“ sagði hann.

Telja manninn enn hafa verið einan að verki

Mark Rowley, yfirmaður hjá Scotland Yard, segir hundruð lögreglumanna hafa unnið í nótt að rannsókn málsins og að húsleit hafi verið gerð á sex stöðum og sjö hafi verið handteknir. Þá sagði hann þrjá hafa látist í árásinni, utan árásarmannsins sem felldur var af lögreglu, en Rowley hafði áður sagt fjóra hafa farist.

„Rannsóknin í Birmingham, London og öðrum hlutum landsins er enn í gangi,“ sagði Rowley í yfirlýsingu sem hann gaf fyrir utan höfuðstöðvar Scotland Yard.

„Það er enn trú okkar – og rannsóknin hefur til þessa styrkt hana – að þessi árásarmaður hafi verið einn að verki og að fyrirmyndin sé sótt í alþjóðlegar hryðjuverkaárásir. Við höfum heldur ekki, til að vera alveg skýr, upplýsingar á þessum tímapunkti sem benda til frekari ógna við almenning.“

Ástand sjö enn alvarlegt

Greint hefur verið frá nafni lög­reglu­manns­ins sem lést í árás­inni. Hann hét Keith Pal­mer og var 48 ára eig­inmaður og faðir. Hann hafði starfað í lög­regl­unni í fimmtán ár. 

Ekki hafa enn verið gef­in upp nöfn annarra sem lét­ust, en að sögn Rowleys, voru þeir af fleiri en einu þjóðerni og voru, auk Palmers, kona á fimmtugsaldri og karl á sextugsaldri. Rowley hafði staðfest fyrr í samtali við fjölmiðla að árásarmaðurinn hefði orðið fjórum að bana, en í yfirlýsingu sinni nú nefndi hann aðeins þrjá. 

Ástand sjö þeirra sem særðust í árásinni er enn alvarlegt, en meðal þeirra sem særðust voru þrjú frönsk skóla­börn og fimm Suður-Kór­eu­menn.

Uppfært: 10.49: Breska lögreglan segir nú átta hafa verið handtekna í tengslum við hryðjuverkaárásina í London í gær, en fyrri upplýsingar lögreglu sögðu sjö hafa verið handtekna í kjölfar húsleita í Birmingham, London og öðrum hlutum landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert