Grunaðir um að undirbúa árás

Blómsveigar hafa verið lagðir við Westminster-brúnna í London til minningar …
Blómsveigar hafa verið lagðir við Westminster-brúnna í London til minningar um fórnarlömbin. AFP

Þær átta manneskjur sem voru handteknar eftir árásina fyrir utan breska þinghúsið í gær eru rannsakaðar „vegna gruns um að undirbúa hryðjuverkaárás“, að sögn bresku lögreglunnar.

Lögreglan greindi einnig frá því að fimm manns væru í mikilli lífshættu og tveir til viðbótar hefðu hlotið lífshættuleg meiðsl eftir að árásarmaðurinn ók á gangandi vegfarendur áður en hann stakk lögreglumann til bana.

Fimm karlmenn og tvær konur eru á meðal þeirra átta sem voru handteknir á þremur stöðum í miðborg Birmingham og í London.

Einnig var gerð húsleit í Wales en enginn var handtekinn.

Að sögn lögreglunnar halda rannsóknarlögreglumenn áfram leit sinni að grunuðum vitorðsmönnum árásarmannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert