Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð sinni á árás sem var gerð á rússneska herstöð í Tjétjéníu í dag. Þar réðust sex vígamenn hryðjuverkasamtakanna inn.
Í yfirlýsingu frá Ríki íslams kemur fram að vígamennirnir hafi átt í bardögum við hermenn í nokkrar klukkustundir.
Þar segir að allir vígamennirnir hafi fallið í árásinni, auk sex rússneskra hermanna.