Aðstoðarflugstjóri þotu flugfélagsins American Airlines lést er vélin var að lenda á flugvelli í Albuquerque í Nýju-Mexíkó í gær.
Skömmu fyrir lendingu tilkynnti flugstjóri vélarinnar um neyðarástand um borð vegna veikinda, að sögn talsmanns flugumferðarstjórnar.
Lenda tókst vélinni heilu og höldnu og tóku bráðaliðar á móti henni á flugvellinum. Lífgunartilraunir voru reyndar en maðurinn var síðar úrskurðaður látinn.
Vélin var af gerðinni Boeing 737-800. Í frétt CNN segir að einn flugmaður geti lent slíkum vélum en slíkt auki þó álag á flugstjórann.
Atvik sem þessi eru óalgeng, að því ver fram kemur í frétt CNN.