Telur NATO ekki lengur úrelt

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipt um skoðun á stöðu Atlantshafsbandalagsins (NATO) og telur það ekki lengur úrelt eins og hann hafði áður ítrekað sagt. Einkum í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum á síðasta ári. 

Trump sagði í tengslum við fund með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra NATO, í Hvíta húsinu í Washington-borg í Bandaríkjunum í gær að hryðjuverkaógnin undirstrikaði mikilvægi bandalagsins. Kallaði hann eftir því að NATO legði meira af mörkum til þess að aðstoða stjórnvöld í Afganistan og Írak.

Trump sagði við blaðamenn eftir fundinn með Stoltenberg að þeir hafi rætt um hvað NATO gæti gert meira í baráttunni gegn hryðjuverkum. „Ég kvartaði yfir því fyrir löngu síðan og þeir komu á breytingum og núna berjast þeir gegn hryðjuverkum. Ég sagði að [NATO] væri útelt. Það er ekki lengur úrelt,“ sagði Trump samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Forsetinn ítrekaði þó kröfu sína um að NATO-ríki legðu meira af mörkum til þess að tryggja nauðsynlegt fjármagn til varnarmála.

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á …
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á blaðamannafundi í gær. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert