Fylgdust með gíraffa fæðast í beinni

Skjáskot af útsendingunni.
Skjáskot af útsendingunni.

Að minnsta kosti 1,2 milljónir manna fylgdust með þegar dýragarður í New York sendi beint út frá fæðingu gíraffakálfs fyrr í dag.

Skömmu fyrir klukkan tíu í morgun að staðartíma kom gíraffinn í heiminn, en dýragarðurinn heitir Adventure Park og er í Harpursville, um 200 kílómetrum norðvestan af New York-borg.

Um 45 mínútum eftir að hann fæðist náði hann að standa á fjórum fótum, með dyggri hjálp móður sinnar. Hægt er að fylgjast með mæðginunum hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert