Corbyn biðlar til félaga um fé

Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaflokksins.
Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaflokksins. AFP

Leiðtogi breska Verkamannaflokksins, Jeremy Corbyn, hefur sent út tölvupóst til um hálfrar milljónar flokksfélaga þar sem hann hvetur þá til þess að láta fé af hendi rakna til þess að styrkja flokkinn vegna fyrirhugaðra þingkosninga í Bretlandi.

Fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins Guardian að Corbyn segi í bréfinu að Verkamannaflokkurinn þurfi á öllu því að halda sem fólki geti látið af hendi til þess að sigra Íhaldsflokkinn sem sé vel fjármagnaður af fámennum hópi milljarðamæringa.

„Íhaldsmennirnir hafa þegar kosningasjóð sem fjármagnaður hefur verið af fámennum hópi milljarðamæringa og þegar aðeins 50 dagar eru til þessara kosninga þá hjálpar allt sem þú getur látið af hendi rakna,“ segir meðal annars í tölvupóstinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert