Trump óskar Erdogan til hamingju

Donald Trump Bandaríkjaforseti óskaði Erdogan til hamingju með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti óskaði Erdogan til hamingju með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hringdi í gær í Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta og óskaði honum til hamingju með úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar, sem haldin var í landinu á sunnudag.

Trump þakkaði Erdogan einnig stuðning hans við loftárásir Bandaríkjahers á herstöð sýrlenska stjórnarhersins 7. apríl.

Stjórnarskrárbreytingar sem Erdogan lagði til og sem auka völd forsetaembættisins verulega fengu nauman meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslunni á sunnudag og voru 51,4% kjósenda samþykk breytingunni, en 48,6% sögðu nei.

Undirbúningi og framkvæmd kosninganna hefur víða verið mótmælt og hyggjast andstæðingar Erdogans kæra niðurstöðuna og hafa krafist endurtalningar. Erdogan hefur hins vegar alfarið hafnað þeirri gagnrýni Örygg­is- og sam­vinnu­stofn­un­ar Evr­ópu (OSCE), sem fylgd­ist með framkvæmd kosninganna, að kosningabaráttan hefði farið fram á „ójöfnum leikvelli“.

Sammála um að Assad svari til saka

Í yfirlýsingu sem send var frá Hvíta húsinu í gær sagði að Trump hefði rætt við Tyrklandsforseta um viðbrögð við notkun Sýrlandsstjórnar á efnavopnum.

Eru forsetarnir tveir sagðir hafa verið sammála um „mikilvægi þess að Bashar al-Assad Sýrlandsforseti verði látinn svara til saka fyrir efnavopnanotkunina. Þá ræddu þeir einnig um aðgerðir gegn hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams.

Samskipti stjórnvalda í Washington og Ankara hafa verið stirð undanfarið, en eitt helsta bitbeinið hefur verið stuðningur Bandaríkjanna við uppreisnarmenn Kúrda í Sýrlandi, sem einnig hafa barist gegn Ríki íslams. Tyrklandsstjórn lítur hins vegar á Verkamannaflokk Kúrda sem hryðjuverkasamtök.  

Stjórnir ríkjanna hafa líka átt í deilum varðandi íslamska klerkinn Fethullah Gulen, sem hefur dvalið í sjálfskipaðri útlegð í Bandaríkjunum um árabil. Tyrknesk stjórnvöld telja hann hins vegar standa að baki misheppnaðri uppreisnartilraun í landinu síðasta sumar og vilja fá hann framseldan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert