Flugskeytaárás á Bandaríkin hluti af hátíðarhöldunum

Mikil hersýning var haldin í Pyongyang í tilefni dagsins.
Mikil hersýning var haldin í Pyongyang í tilefni dagsins. AFP

Þegar yfirvöld í Norður-Kóreu héldu um helgina upp á það að 105 ár eru frá fæðingu Kim Il Sung, stofnanda ríkisins, var boðið upp á tónlistarsýningu sem endaði með myndbandi sem sýndi flugskeytaárás á Bandaríkin.

Myndbandsýningin vakti mikinn fögnuð hjá áhorfendum og fékk bros að launum frá Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu sem jafnframt er barnabarn stofnanda ríkisins.

Reuters-fréttastofan segir norðurkóreska ríkissjónvarpið hafa sýnt frá hátíðarhöldunum á sunnudag, en daginn áður hafði verið boðið til mikillar hersýningar í höfuðborginni Pyongyang.

Hermenn veifa almenning að lokinni hersýningunni.
Hermenn veifa almenning að lokinni hersýningunni. AFP

Tónleikunum á sunnudag lauk með myndskeiðum af flugskeytatilraunum norður-kóreska hersins. Búið var hins vegar að bæta fleiri flugskeytum inn á myndskeiðið og voru þau sýnd skjótast yfir Kyrrahafið og springa síðan sem risastórir eldhnettir á bandarískri grundu.

Myndbandinu lauk með mynd af bandaríska fánanum í logum og röð af hvítum krossum í kirkjugarði.

„Þegar sýningunni lauk fögnuðu listamennirnir og þátttakendur í hersýningunni með miklum húrrahrópum,“ sagði í umfjöllun KCNA ríkisfréttastofunnar um málið.

Yfirvöld í Norður-Kóreu heita því reglulega að leggja Bandaríkin í eyði og í kjölfar þeirra auknu spennu sem nú er í samskiptum ríkjanna hafa menn ekki verið sparir á stóru orðin. Hefur Norður-Kórea þannig hótað kjarnorkustríði grípi Bandaríkin til hernaðaraðgerða gegn þeim.

Dansað var á torgi Kim Il-Sung í tilefni þess að …
Dansað var á torgi Kim Il-Sung í tilefni þess að 105 ár eru frá fæðingadegi stofnanda Norður-Kóreu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert