Bill O´Reilly sagt upp störfum

Bill O'Reilly.
Bill O'Reilly. AFP

Fréttastofan Fox News hefur sagt þáttastjórnandanum Bill O´Reilly upp störfum vegna ásakana um kynferðislega áreitni og dvínandi auglýsingatekna í framhaldi af þeim.

„Eftir að hafa farið vel og vandlega yfir ásakanirnar hafa fyrirtækið og Bill O´Reilly ákveðið að Bill O´Reilly muni ekki snúa aftur á Fox-fréttstöðina,“ sagði í yfirlýsingu frá 21st Century Fox.

O´Reilly hafði stjórnað stjórnmálaþættinum The O´Reilly Factor frá árinu 1996.  

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert