Grunaðir um að undirbúa hryðjuverk

Til átaka kom þegar lögregla reyndi að handtaka mennina.
Til átaka kom þegar lögregla reyndi að handtaka mennina. AFP

Rússneska öryggislögreglan drap tvo menn í Vladim-héraðinu austur af Moskvu í dag, sem grunur lék á að væru að undirbúa hryðjuverkaárás.

Til átaka kom þegar lögregla reyndi að handtaka mennina, sem voru báðir frá Mið-Asíuríki. Rússneska Interfax-fréttastofan hefur eftir lögreglu að báðir mennirnir hafi verið í tengslum við einstaklinga sem leita nýrra liðsmanna fyrir alþjóðleg hryðjuverkasamtök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert