Árásarmaðurinn var undir eftirliti

Forsetaframbjóðendurnir Marine Le Pen og Franço­is Fillon, for­setafram­bjóðandi franskra hægrimanna, hyggjast fresta síðustu kosningafundum sínum sem áttu að vera á morgun vegna árásarinnar á Champs Elysees-breiðgötunni í París í kvöld. Í henni lést einn lögreglumaður og tveir særðust auk árásarmannsins sem var felldur. Þetta kemur fram á AFP.  

Árásarmaðurinn sem hefur ekki verið nafngreindur í fjölmiðlum var á lista lögreglunnar yfir hugsanlega hryðjuverkamenn. Maðurinn hafði gefið út hatursfull ummæli og meðal annars sagst vilja myrða lögreglumenn.  

Fyrr í kvöld gerði lögreglan húsleit á heimili mannsins sem er í úthverfi Parísar. 

Árásarmaðurinn er sagður hafa komið akandi á Champs Elysees-breiðgötuna og farið út úr bílnum og skotið með sjálfvirkri byssu á bifreið lögreglu og skotið á einn lögregluþjón sem lést samstundis. Eftir það lagði hann á flótta og skaut á fleiri lögregluþjóna áður en lögreglan felldi hann. Þetta átti sér stað um kl. 19 í kvöld.  

Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni og segir einn liðsmann sinn hafa gert hana. Fréttastofa CNN greinir frá þessu. 

Skothvellir heyrðust nálægt versluninni Marks & Spencer á breiðstrætinu sem er vinsæll ferðamannastaður. Mikil hræðsla greip um sig og þusti fólk um svæðið. 

Rannsókn er þegar hafin á atvikinu. Champs Elysees-breiðgatan er enn lokuð og er mikill viðbúnaður á svæðinu. 

Tveir forsetaframbjóðendur hafa frestað kosningafundum sínum sem voru á dagskrá …
Tveir forsetaframbjóðendur hafa frestað kosningafundum sínum sem voru á dagskrá á morgun vegna árásarinnar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert