Lögreglan hefur loks haft hendur í hári kennarans Tad Cummins sem stakk af ásamt fimmtán ára nemanda sínum sem hann kallaði eiginkonu sína á flóttanum.
Cummins er frá Tennessee. Hans hefur verið leitað frá því um miðjan mars. Í vikunni fékk lögreglan ábendingu sem loks leiddi til handtöku hans. Stúlkan fannst einnig heil á húfi.
Í ítarlegri frétt CNN um málið segir að Cummins hafi dulist undir fölsku nafni í bæ í norðurhluta Kaliforníu. Hann sagði fólki að unga stúlkan væri eiginkona sín og að hann væri sjálfur frá Colorado og hefði flutt eftir að hann missti vinnuna og hús sitt. Þessa sögu sagði hann manni sem fór að gruna að eitthvað væri bogið við málið og lét lögregluna vita.
Fyrr í vikunni var Cummins, sem er fimmtugur svo handtekinn í kofa í Cecilville. Þar með lauk 39 daga umfangsmikilli leit að honum og stúlkunni. Stúlkan er búsett í Nashville og hafði því ferðast langa vegalengd með Cummins.
Leiða átti Cummins fyrir dómara í Kaliforníu í dag en hann á yfir höfði sér ákæru um mannrán.
Cummins og stúlkan höfðu dvalið að minnsta kosti sólarhring í kofanum er lögreglan fann þau. Þau höfðu hins vegar dvalið í skóginum í nágrenni hans um tíma.
Maðurinn sem leiddi lögregluna á sporið,GriffinBarry, sagði aðCummins hefði sagt sér að hann væri 44 ára og stúlkan 22 ára eiginkona hans. Þeir höfðu hist á bensínstöð þar semCummins bar sig svo aumlega aðBarry gaf honum pening fyrir bensíni. Hann bauð honum einnig vinnu og að dvelja í kofa sínum í nágrenninu.
En svo fór Barry að gruna að ekki væri allt með felldu. Cummins hafi verið á númerslausum bíl og að stúlkan hafi varla sagt stakt orð. Hann fór á netið og komst að því að Cummins væri eftirlýstur fyrir barnsrán. Barry hjálpaði lögreglunni svo að leiða Cummins í gildru og handtaka hann.
Saksóknari sem fór fyrir rannsókn málsins segir að engin orð geti lýst þeim létti sem fjölskylda stúlkunnar finni nú fyrir.
Aðdragandi málsins er sá að Cummins hafði verið raungreinakennari í skóla í Tennessee. Hann hafði verið rekinn eftir að nemandi sagðist hafa séð hann kyssa stúlkuna, nemanda sinn, í skólastofunni. Nokkrum dögum síðar hvarf hann svo og stúlkan sömuleiðis. Þau sáust saman á eftirlitsmyndavél í verslun í Oklahoma-borg tveimur dögum síðar. Þá komst lögreglan einnig að því að parið hafði leigt sér herbergi á hóteli í tvær nætur. En hins vegar gufaði slóð þeirra svo upp.
Cummins er giftur og hafði skilið eftir bréf til eiginkonu sinnar er hann lét sig hverfa. Í bréfinu sagðist hann þurfa smá rými til að ná áttum. Hann tók svo bankalán og leysti út lyfseðilskyld lyf sín, m.a. stinningarlyf. Þá sagði eiginkona hans að hann hefði tekið tvær skammbyssur með sér.
Ljóst þykir að parið átti í einhvers konar sambandi. En sökum ungs aldurs stúlkunnar á Cummins yfir höfði sér ákæru fyrir ekki aðeins mannrán heldur einnig fyrir kynferðisbrot.