Átök í Köln

Mótmælendur létu ófriðlega.
Mótmælendur létu ófriðlega. AFP

Einn mótmælandi var handtekinn fyrir að veita flokksmanni Annars kosts fyr­ir Þýska­land (AfD), sem er hægris­innaður þjóðern­is­flokk­ur, áverka á andliti. Þúsundir mótmælenda voru saman komnar við hótel í miðborg Köln í dag þar sem flokksþingi AfD fer fram

Mótmælendur reyndu að hindra flokksmenn í að komast inn í bygginguna og voru með háreysti. Um fjögur þúsund lögreglumenn eru á svæðinu en áætlað er að um 50 þúsund mótmælendur taki þátt í mótmælunum um helgina en flokksþingið hófst í dag og lýkur á morgun.  

Flokknum AfD, sem meðal ann­ars leggst gegn nú­ver­andi inn­flytj­enda­stefnu og Evr­ópu­sam­band­inu, hef­ur vaxið ásmeg­in und­an­farið, líkt og fleiri sam­bæri­leg­um flokk­um í Evr­ópu.

Um 600 flokksmenn mættu á þingið. Flokkurinn býður fram til kosninga í 11 héruðum af 16 í þingkosningum í Þýskalandi í september og freistar þess að ná í fyrsta skipti manni á þing. 

Mótmælendur segja Annan kost fyrir Þýskaland vera rasískan.
Mótmælendur segja Annan kost fyrir Þýskaland vera rasískan. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert