Mikil öryggisgæsla í Frakklandi

Franskir öryggisverðir og lögreglumenn spjalla saman fyrir framan kosningaplaköt í …
Franskir öryggisverðir og lögreglumenn spjalla saman fyrir framan kosningaplaköt í Le Touquet í Frakklandi. AFP

Mikil öryggisgæsla verður í Frakklandi í dag vegna forsetakosninga sem þar eru hafnar. Um 50 þúsund lögreglumenn og sjö þúsund hermenn verða á varðbergi víðs vegar um landið til að tryggja að allt gangi vel. Þrír dagar eru liðnir síðan lögreglumaður var skotinn til bana í París.

Karim Cheurfi, dæmdur glæpamaður, skaut þá lögreglumann í höfuðið á breiðgötunni Champs Elysees í París. Talið er að hann hafi verið fylgismaður Ríkis íslams. 

Fólk er byrjað að mæta á kjörstað.
Fólk er byrjað að mæta á kjörstað. AFP

Ellefu bjóða sig fram til embættis forseta Frakklands en talið er að fjórir frambjóðendur muni berjast um stöðuna, eða íhaldsmaðurinn Francois Fillon, Marine Le Pen leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, frjálslyndi miðjumaðurinn Emmanuel Macron og vinstrisinninn Jean-Luc Mélonchon.

Síðar verður kosið á milli þeirra tveggja frambjóðenda sem fá flest atkvæði í dag, að því er BBC greinir frá. 

Franskur lögreglumaður fyrir utan kjörstað í Henin-Beaumont í norðurhluta Frakklands.
Franskur lögreglumaður fyrir utan kjörstað í Henin-Beaumont í norðurhluta Frakklands. AFP
Einn af frambjóðendunum, Nicolas Dupont-Aignan, greiðir atkvæði sitt í Yerres, …
Einn af frambjóðendunum, Nicolas Dupont-Aignan, greiðir atkvæði sitt í Yerres, úthverfi Parísar. AFP
Frambjóðandinn Lutte Ouvriere á kjörstað í morgun.
Frambjóðandinn Lutte Ouvriere á kjörstað í morgun. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert