Yfirvöld í Rússlandi rannsaka nú hvað hafi valdið því að þak á vöruhúsi drykkjarverksmiðju hrundi með þeim afleiðingum að götur bæjarins Lebedyan, sem er um 300 km suður af Moskvu, voru fljótandi í ávaxtasafa.
Vöruhúsið sem er í eigu Pepsi var á níu hæðum og geymdi 28 milljónir lítra af safa, en rannsakendur segja húsið hafa verið byggt eins og spilaborg.
Videos posted to social media show fruit juice flowing through streets of Russian town after factory roof collapse. https://t.co/x4Bg8CcXSR pic.twitter.com/DakX7FdMTS
— ABC News (@ABC) April 25, 2017
Tveir slösuðust er þakið féll og myndbandsupptökur í rússneskum fjölmiðlum hafa sýnt flóð af rauðleitum ávaxtasafa renna eftir götum bæjarins, en atburðurinn vakti mikla athygli ökumanna.
„Nokkur tonn af safa flæddu út á göturnar þegar þakið hrundi og enduðu í ánni Don,“ hefur AFP-fréttastofan eftir saksóknara.