Vilja háar sektir vegna nektarmynda

Vilhjálmur og Katrín í Frakklandi fyrr á þessu ári.
Vilhjálmur og Katrín í Frakklandi fyrr á þessu ári. AFP

Saksóknarar í réttarhöldum yfir sex fulltrúum fjölmiðla sem birtu nektarmyndir af Katrínu hertogaynju, eiginkonu Vilhjálms Bretaprins, fara fram á „mjög háar sektir“ vegna myndbirtinganna.

Réttarhöldin hófust fyrr í dag.

Lögfræðingur Katrínar og Vilhjálms fór einnig fram á „mjög háar skaðabætur“ vegna ljósmyndanna sem voru teknar með langri linsu er hjónin voru í fríi í suðurhluta Frakklands.

Myndirnar voru birtar í tímaritinu Closer og dagblaðinu La Provence árið 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert