Vill að Bandaríkjamenn hætti við

Erdogan hugnast ekki að Bandaríkjamenn vopni bardagasveitir Kúrda í Sýrlandi.
Erdogan hugnast ekki að Bandaríkjamenn vopni bardagasveitir Kúrda í Sýrlandi. AFP

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur kallað eftir því að stjórnvöld í Bandaríkjunum falli án tafar frá ákvörðun sinni um að vopna bardagasveitir Kúrda í Sýrlandi. Stjórnvöld í Ankara flokka sveitirnar sem hryðjuverkahópa.

„Ég vona einlæglega að þessum mistökum verði snúið umsvifalaust,“ sagði Erdogan í kjölfar þess að yfirvöld í Washington tilkynntu að þau hygðust vopna svokallaðar Verndarsveitir Kúrda (YPG) í baráttunni gegn jíhadistum í Sýrlandi.

Erdogan hét því að ræða málið við Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar leiðtogarnir hittast í fyrsta sinn í Washington 16. maí nk.

„Ég mun persónulega tjá ítarlega áhyggjur okkar þegar við ræðum við Trump forseta 16. maí,“ sagði Erdogan. Þá yrði málið einnig rætt á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins í Brussel 25. maí.

„Við kjósum að trúa því að bandamenn okkar vilji frekar standa við hlið okkar en við hlið hryðjuverkasamtaka,“ bætti Erdogan við og sagði hvaðeina sem gerðist í Sýrlandi og Írak varða þjóðaröryggi Tyrklands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert