Rouhani náði endurkjöri

Hassan Rouhani veifar til mannfjöldans.
Hassan Rouhani veifar til mannfjöldans. AFP

Íranska ríkissjónvarpið hefur óskað Hassa Rouhani, forseta Írans, til hamingju með að hafa náð endurkjöri í forsetakosningunum í landinu. Þar með er staðfest að Rouhani hafi borið sigur úr býtum.

Búið er að telja nánast öll atkvæðin og sigraði Rouhani með miklu öryggi. Hann hefur hlotið 22,8 milljónir atkvæða á móti 15,5 milljónum frá keppinaut sínum Ebrahim Raisi.

Eshaq Jahangiri, varaforseti Írans, fagnaði sigri Rouhani í færslu sinni á Twitter. Hann sagði sigurinn vera stóran og að núna verði haldið áfram á braut „visku og vonar“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert