Fundu lík konu og barns í íbúðinni

Wikipedia

Lögreglumenn í borginni Bonn í Þýskalandi brutu sér leið inn í íbúð í morgun eftir að nágrannar höfðu tilkynnt um rifrildi í henni.

Þegar inn var komið fann lögreglan lík konu og ungrar stúlku. Við frekari leit í íbúðinni rakst lögreglan á karlmann og skaut á hann með þeim afleiðingum að hann lést. Fjallað er um málið á fréttavefnum Thelocal.de.

Talið er að líkin séu af eiginkonu mannsins og dóttur fólksins. Konan var 39 ára gömul og dóttirin þriggja ára. Haft er eftir lögreglu að komið hafi til átaka en ekki sé hægt að segja meira að svo stöddu um málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert