Íslenskur svaramaður vakti hneykslan

Pippa Middleton og James Matthews í brúðkaupinu.
Pippa Middleton og James Matthews í brúðkaupinu. AFP

Íslenskur svaramaður hneykslaði brúðkaupsgesti í konunglegu brúðkaupi Pippu Middleton, systur Katrínar Middleton, hertogaynju af Cambridge, og James Matthews bankamanns nú á dögunum. Þótti ræða hans fremur dónaleg, en neðanbeltisbrandarar voru þó nokkrir.

Svaramaðurinn heitir Justin Johannessen, en hann er hálfur Íslendingur. Greinir Telegraph frá því að hann sé sonur Íslendingsins Bjarna Jóhannessonar, fyrrverandi flugmanns og Oliviu Johannesson. Justin er bróðursonur Lofts Jóhannessonar, eins ríkasta núlifandi Íslendingsins.

Justin hefur verið góður vinur Matthews í tíu ár, en þeir deila áhuga á hinum ýmsu íþróttum. Hafa þeir meðal annars hlaupið saman maraþon á Norðurpólnum og hjólað þvert yfir Bandaríkin, ásamt Pippu. 

„Falleg, orkumikil, trygg, hljóðlát, hlýðin, með frábæran afturenda

Á meðal gesta í brúðkaupinu voru Vilhjálmur Bretaprins og Katrín Middleton, ásamt Harry Bretaprins og fleirum úr bresku hirðinni. Justin hóf ræðu sína rétt fyrir miðnætti þegar gestir höfðu lokið við fimm rétta veislumáltíð.

„Og nú til ástarinnar í lífi James: falleg, orkumikil, trygg, hljóðlát, hlýðin, með frábæran afturenda. En nóg um tíkina Rafa, ég er hér til að tala um hina ástina í lífi James, Pippu,“ er haft eftir Justin á vef Telegraph.

Samkvæmt frétt miðilsins olli Justin þó ekki aðeins hneykslan, heldur hafði uppi afar hlý orð um Pippu. Sagði hann hana vera kjarkmikla, fagra og hvetjandi. Þá sagði hann að Pippa væri „fullkomin“.

Þá grínaðist Justin með brúðkaupsferð brúðhjónanna með orðagríni, en þýðing brandarans glatast sé hann ekki á frummálinu:

„With the wedding shadowed in secrecy, I can reveal, and wish the bride and groom a happy honeymoon in North Wales.

At least that's where I presume they are going as I heard Spencer saying that after the wedding, he [James] was going to Bangor for two weeks. Enjoy the Welsh coast, guys.“

Þá sagði Justin að samband þeirra væri vitnisburður um „djúpa og raunverulega ást“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert