Grunsamlegur pakki fannst í Manchester

Blað þar sem á stendur „Við elskum Manchester
Blað þar sem á stendur „Við elskum Manchester" á glugga í miðborg Manchester. AFP

Ástandið í Linby-götu í Manchester er öruggt að mati lögreglunnar eftir að grunsamlegur pakki fannst þar. Sprengjusveit lögreglunnar var kölluð á vettvang í hverfið Humle sem er skammt frá miðborg Manchester.

Aðeins nokkrir dagar eru síðan hryðjuverkaárás var gerð í Manchester Arena þar sem 22 manns fórust og 64 særðust.

Þó nokkrum götum var lokað vegna atviksins í Linby-götu en búið er að opna fyrir þær aftur.

Fyrst kom fram að sprengjusveitin væri stödd við framhaldsskóla í Trafford en það reyndist ekki rétt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert