Jeppinn endaði á stofugólfinu

Jeppinn endaði inni í stofu hússins.
Jeppinn endaði inni í stofu hússins. Skjáskot

Íbúa í Milwaukee í Bandaríkjunum brá heldur betur í brún þegar jeppa var ekið inn í húsið hans í gær. Jeppinn endaði á stofugólfinu hjá honum, en hann var sofandi aðeins örfáum metrum þar frá.

Ökumaður jeppans segist hafa keyrt á gangstéttarbrún og skyndilega hafi jeppinn tekist á loft með fyrrgreindum afleiðingum. Enginn slasaðist, en miklar skemmdir urðu á húsinu.

„Þetta var eins og sprenging,“ sagði húsráðandi í samtali við ABC. „Ég vissi ekki hvort þetta væri sprenging eða hvort eldur hefði kviknað. Ég vissi ekkert hvað var í gangi.“

Metið er nú hvort öruggt sé að búa í húsinu. Þá segir lögregla að hugsanlega verði ökumanni bílsins stefnt fyrir gáleysislegan akstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert