Réðst á hermann með hnífi

Ísraelskir hermenn.
Ísraelskir hermenn. AFP

Palestínsk kona stakk ísraelskan hermann við landnemabyggð Ísraela á Vesturbakkanum í morgun. Var skotið á hana í kjölfarið og hún særð alvarlega.

Fram kemur í frétt AFP að hermaðurinn hafi verið fluttur á sjúkrahús með stungusár á efri helmingi líkama síns. Ástand konunnar er alvarlegt. Árásin átti sér stað við innganginn að landnemabyggðinni Mevo Dotan

Talsvert hefur verið um slíkar árásir undanfarin misseri þar sem Palestínumenn vopnaðir hnífum eða byssum hafa ráðist á ísraelska hermenn. Einnig hafa verið notaðar bifreiðar í þeim tilgangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert