Annar Frakki látinn eftir árásirnar

Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands.
Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands. AFP

Annar franskur ríkisborgari er látinn eftir hryðjuverkaárásirnar á London um síðustu helgi. Þetta sagði Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands.

„Með sorg í hjarta frétti ég af því að einn af frönsku ríkisborgurunum, sem greint hafði verið frá að hafi verið saknað, er á meðal þeirra sem létust,“ sagði Le Drian í yfirlýsingu.

Hann bætti við að eins Frakka til viðbótar sé saknað eftir árásirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert