„Ég fékk tækifæri“

Chelsea Manning.
Chelsea Manning. AFP

Bandaríski hermaðurinn Chelsea Manning sem sat í sjö ár í fang­elsi fyr­ir að hafa lekið hundruðum þúsunda skjala í eigu banda­rískra stjórn­valda til upp­ljóstr­un­ar­síðunn­ar Wiki­leaks árið 2010 þakkaði Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir að hafa mildað dóminn yfir henni.

Í stuttu viðtalsbroti þar sem rætt var við Manning á ABC í morgun sagðist hún ekki hafa haft samband við Obama síðan hann mildaði dóm hennar fyrir fimm mánuðum. Hún myndi segja honum hversu þakklát hún væri ef hún gæti.

„Ég fékk tækifæri og það var allt sem ég vildi,“ sagði Manning og bætti við, brostinni röddu: „Allt sem ég bað um var tækifæri.“

Mann­ing, sem er 29 ára göm­ul, greindi frá því dag­inn eft­ir að hún var dæmd af her­dóm­stóln­um að hún hefði upp­lifað sig sem sem kven­kyns ein­stak­ling frá barnæsku og vildi lifa eft­ir­leiðis sem kona und­ir nafn­inu Chel­sea.

Hún fór í kynskiptiaðgerð stuttu eftir að hafa verið dæmd en herinn neitaði henni um að fara í hormónameðferð á meðan hún var bak við lás og slá. Henni var komið fyrir í einangrunarvist eftir að hún reyndi tvívegis að fremja sjálfsvíg.

Manning hélt áfram að berjast fyrir því að fá viðeigandi meðferð og yfirvöld létu loks undan. Í viðtalinu kemur hún inn á að hormónameðferðin hafi verið gríðarlega mikilvæg.

„Það er bókstaflega það sem heldur mér á lífi og kemur í veg fyrir að mér finnist ég vera í röngum líkama. Áður fyrr fékk ég hræðilega tilfinningu og mig langaði að rífa líkamann í sundur.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert