Pundið fallið um næstum tvö prósent

Gengi breska pundsins hefur fallið um næstum tvö prósent síðan útgönguspár voru birtar klukkan níu að íslenskum tíma fyrr í kvöld. Gengið tók strax dýfu gagnvart Bandaríkjadal á fyrstu mínútunum eftir að spárnar voru birtar.

Útlit er nú fyrir að enginn flokkur muni hafa hreinan meirihluta á breska þinginu, sem er afar fátítt í Bretlandi og hefur aðeins gerst fimm sinnum frá lokum 19. aldar. Það hugnast sérfræðingum á fjármálamörkuðum ekki, þar sem sú staða hefur í för með sér enn frekari óvissu, þegar sífellt styttist í upphaf Brexit-viðræðna sem fara eiga fram síðar í mánuðinum.

Theresa May, forsætisráðherra og leiðtogi Íhaldsflokksins, hafði efnt til kosninganna í von um að fjölga sætum flokksins á þinginu og veita henni um leið sterkara umboð í komandi viðræðum.

Jeremy Corbyn og Verkamannaflokkur hans hafa hins vegar reynst henni óþægur ljár í þúfu og það forskot sem hún hafði í upphafi kosningabaráttunnar hefur nánast orðið að engu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert