Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, átti eflaust vandræðalegasta augnablik kosninganæturinnar þegar hann hugðist gefa flokkssystur sinni og þingmanninum Emily Thornberry góða fimmu á gamla mátann.
Thornberry hefur gegnt þingmennsku fyrir Verkamannaflokkinn í Suður-Islington og Finsbury frá árinu 2005 og var Corbyn að fagna sigri hennar í kjördæminu. Skömmu síðar var svo tilkynnt að Corbyn hefði farið með öruggan sigur af hólmi í sínu eigin kjördæmi, Norður-Islington.
Atvikið ætti því varla að draga mikið ef nokkuð úr gleði beggja í nótt. Aðrir geta hins vegar glaðst yfir því að það skuli yfir höfuð hafa náðst á myndband.
Whoa! Jeremy Corbyn has very awkward high five with Emily Thornberry #ElectionDay2017 pic.twitter.com/G6Orprloj8
— The Telegraph (@Telegraph) June 9, 2017