Þrettán látnir í átökum við íslamista

Herinn berst við vígamennina í borginni.
Herinn berst við vígamennina í borginni. AFP

Þrettán landgönguliðar filippseyska hersins hafa látist í dag í skotbardögum við herskáa íslamista sem náð hafa völdum í hluta borgarinnar Marawi.

Her Filippseyja berst við að halda hundruðum íslamistanna í skefjum, en þeir réðust inn í borgina 23. maí síðastliðinn prýddir svörtum fánum hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Ríki íslams.

Frá því átökin brutust út hafa 58 manns úr herliði stjórnvalda látið lífið. 138 vígamenn hafa einnig verið drepnir í átökunum, auk tuttugu almennra borgara samkvæmt tölum yfirvalda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert