Fjöldi látinna í eldsvoðanum í Grenfell-turninum í London, höfuðborg Bretlands, er kominn í 30 samkvæmt frétt bresku sjónvarpsstöðvarinnar Sky.
Talið er að tala látinna eigi eftir að hækka verulega. Ekki er reiknað með að fleiri finnist á lífi að sögn lögreglunnar.
Ekki liggur fyrir hvað olli eldsvoðanum en enn sem komið er bendir ekkert til þess að um íkveikju hafi verið að ræða.