Sjö bandarískra sjóliða er saknað eftir að bandaríski tundurspillirinn USS Fitzgerald rakst á gámaflutningaskip skammt undan vesturströnd Japans. Leit stendur yfir. Nokkrir hafa slasast, þar á meðal sjóliðsforingi herskipsins. Hann var fluttur á sjúkrahús í þyrlu.
Áreksturinn varð um 104 km suðvestur af borginni Yokosuka um klukkan 02:30 í nótt að staðartíma (kl. 17:30 að íslenskum tíma í gær). Mikið tjón varð á stjórnborða, eða á hægri hlið herskipsins. Gámaflutningaskipið skemmdist minna, en stafn skipsins rakst á herskipið. Þetta kemur fram á vef BBC.
Líðan skipstjórans, Bryce Benson, er sögð vera stöðug, en hann var fluttur á bandarískt hersjúkrahús í Yokosuka.
Tveir sjóliðar til viðbótar voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu, en þeir hlutu skurði og mar.
Sjór byrjaði að flæða inn í herskipið, sem er 154 metra langt, í kjölfar áreksturins en tekist hefur að stöðva lekann og menn telja enga hættu á því að skipið muni sökkva. Það siglir nú undir eigin vélarafli til Yokosuka. Það fer hins vegar ekki hratt yfir sökum þeirra skemmda sem skipið varð fyrir.
Mikil skipaumferð er á því svæði þar sem áreksturinn varð.