Þriggja daga þjóðarsorg í Portúgal

Portúgölsk stjórnvöld hafa lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna skógareldanna sem þar hafa geisað en þeir eru þeir mannskæðustu í manna minnum.

Alls hafa 62 farist í skógareldunum, sem brutust út í Pedrogao Grande í miðhluta Portúgals.

Yfir fimmtíu manns eru særðir.

 

 

Gríðarmiklir skógareldar hafa geisað í Portúgal.
Gríðarmiklir skógareldar hafa geisað í Portúgal. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert