Hryðjuverkamaðurinn nafngreindur

Lögreglan við húsið í Cardiff.
Lögreglan við húsið í Cardiff. AFP

Karlmaður sem handtekinn var í tengslum við hryðjuverið skammt frá mosku í London, höfuðborg Bretlands, í dag hefur verið nafngreindur en hann heitir Darren Osborne og er frá Cardiff í Wales. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC. Breska lögreglan hefur gert húsleit í húsi í Cardiff sem talin er vera heimili Osbornes.

Fram kemur í fréttinni að Osborne hafi verið handtekinn eftir að sendiferðabifreið var ekið á múslima sem höfðu verið við bænahald í moskunni. Osborne er 47 ára gamall og fjögurra barna faðir. Vegfarendur yfirbuguðu Osborne og héldu honum föstum þar til lögreglan kom á vettvang en þeir segja að hann hafi sagst vilja drepa alla múslima.

Haft er eftir Ben Wallace, ráðherra öryggismála, að breska leyniþjónustan hafi ekki haft upplýsingar um Osborne en talið sé að hann hafi verið einn að verki. Einn karlmaður lést í kjölfar árásarinnar og tíu særðust. Ekki liggur þó fyrir hvort maðurinn lést vegna árásarinnar en hann hafði skömmu áður fallið í yfirlið þegar árásin var gerð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert