Óttast frekari berghlaup

Björgunarskipið Tjaldrið kemur að björgunaraðgerðum á vesturströnd Grænlands.
Björgunarskipið Tjaldrið kemur að björgunaraðgerðum á vesturströnd Grænlands. mbl.is/Golli

Langar vegalengdir og afskekkt svæði gera rýmingu í kjölfar berghlaups á vesturströnd Grænlands erfiða. Rýmingu hefur enn ekki verið aflétt og fleiri svæði hafa verið rýmd.

Claus Munk, sérfræðingur hjá Björgunarmiðstöðinni í Danmörku segir að Grænland sé gjörólíkt löndum Skandinavíu. Landslagið sé erfitt yfirferðar og vegalengdirnar gríðarlegar. „Vegalengdin frá norðurhluta Grænlands til  þess syðsta er sú sama og frá Noregi til Norður-Afríku.“

Ekki er heldur að finna fjölmennar sveitir viðbragðsaðila á Grænlandi. Því hafi ekki verið hægt að kalla út mikinn mannskap er berghlaup á Vesturströndinni, jarðskjálfti fylgdi og flóðbylgja sem fór á land og olli eyðileggingu og slasaði fólk.

Þorpin sem urðu illa úti eru einangruð. Þangað liggja ekki góðir vegir heldur þarf að komast þangað í lofti eða á sjó.

Munk bendir á, í samtali við Danska ríkisútvarpið, að jafnvel þótt vesturströndin sé eitt þéttbýlasta svæðið á Grænlandi sé mjög langt á milli þorpa og bæja. Oft geti verið illfært, jafnvel á sjó, þar sem hafís hefti för. 

Íbúar komu því sjálfir að björgunarstarfinu um helgina. Þeir buðu fram báta sína og fleira, að sögn Munks. 

Munk segir að efla verði viðbúnað á Grænlandi. Hann segir að Danir vilji gjarnan hjálpa en það sé ekki alltaf mögulegt þar sem tíma tekur fyrir björgunarlið þaðan að fara á staðinn. 

Her- og strandgæsluskip hafa aðstoðað við að rýma þorp og bæi. Hafa skipin Vædderen og Ejnar Mikkelsen flutt íbúa í öruggt skjól. 

Í dag verða þyrlur og flugvélar notaðar til að mynda hamfarasvæðin úr lofti og til að aðstoða við að greina frekari hættu. Enn er talin hætta á frekari skriðuföllum og því hafa fleiri svæði verið rýmd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert