Vörðu ekki gögn um milljónir kjósenda

Verktaki sem starfaði fyrir Repúblikanaflokkinn í Bandaríkjunum og sá um að vinna úr tölfræðigögnum fyrir flokkinn gerði gagnagrunna með upplýsingum um 198 milljónir mögulegra kjósendur aðgengilegar á netinu án þess hugs að öryggi þeirra. Þetta þýddi að hver sem er sem vissi hvar ætti að leita upplýsinganna gat nálgast þær.

„Við berum fulla ábyrgð á þessu máli,“ segir í yfirlýsingu frá verktakanum, Deep Root Analytics. Gagnagrunnarnir voru hluti af 25 terebætum af skrám sem geymdar voru í skýi sem hægt var að fá aðgang að án lykilorðs. Chris Vickery hjá öryggisfyrirtækinu UpGuard uppgötvaði þetta en í kjölfar þess að gripið til aðgerða til að tryggja öryggi gagnanna.

Haft er eftir Vickery, sem hefur mikla reynslu þegar kemur að öryggismálum á netinu, á fréttavefnum The Hill, segist aldrei hafa séð slíkt mál af þessari stærðargráðu. Um sé að ræða stærsta mál sem hann hafi komist í tæri við þegar komi að gagnamagni og umfangi. Gögnin innihalda meðal annars nöfn og heimilisföng einstaklinganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert