Enn óljóst hvað olli flóðbylgjunni

Flóðbylgjan olli gríðarlegu tjóni í þorpinu.
Flóðbylgjan olli gríðarlegu tjóni í þorpinu. AFP

Enn er óljóst hvað olli því að flóðbylgja skall á þorpinu Nuugaatisiaq á Grænlandi á laugardagskvöld. Talið er að fjórir einstaklingar sem saknað hefur verið síðan fljóðbylgjan skall á séu látnir. 

Peter Voss, jarðskjálftafræðingur hjá Rannsóknarstofnun jarðfræði Danmerkur og Grænlands (GEUS), segir í samtali við DR að næstu skref séu að finna út úr því hvað það var sem olli berghlaupinu sem kom flóðbylgjunni af stað.

Jón Viðar Sigurðsson jarðfræðingur sagði í samtali við mbl.is á laugardag tvennt koma til greina. Annað hvort hafi jarðskjálfti ollið flóðbylgjunni eða berghlaup sem fallið hafi niður í sjó. 

Þjóðhátíðardagur Grænlands er í dag 21.júní og grænlenska fánanum er nú flaggað í hálfa stöng við opinberar byggingar í Danmörku vegna náttúruhamfaranna.

Hjálparstarf kirkjunnar, KALAK, Hrókurinn og fleiri grænlandsvinir hafa komið af stað landsöfnun undir heitinu „Vinátta í verki“ og rennur söfnunarfé óskert til neyðarhjálpar og uppbyggingar á svæðinu.

Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á söfnunarreikning 0334-26-056200, kennitala 450670-0499 eða hringja í síma 907-2003 og leggja þannig til 2.500 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert