Filippus lagður inn á sjúkrahús

Filippus í garðveislu í Buckingham-höll 1. júní síðastliðinn.
Filippus í garðveislu í Buckingham-höll 1. júní síðastliðinn. AFP

Filippus drottningarmaður hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna sýkingar. Í tilkynningu frá Buckingham-höll  kemur fram að sýkingin hafi komið upp vegna fyrri veikinda.

Filippus, sem er 96 ára, ætlar að láta af opinberum skyldum sínum síðar á þessu ári.

Hann var lagður inn á King Edward VII-sjúkrahúsið í London í nótt.

Filippus átti að taka þátt í athöfnum við breska þingið og kappreiðum í Royal Ascot en missir af þeim.

Í stað hans mun Karl Bretaprins, elsti sonur Elísabetar Englandsdrottningar og Filippusar, fylgja móður sinni í þinghúsið, þar sem drottningin mun halda sína árlegu opnunarræðu.

Filippus og Elísabet Englandsdrottning.
Filippus og Elísabet Englandsdrottning. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert