Sakaður um brot gegn níu drengjum

Jonathan King er sakaður um brot gegn níu drengjum.
Jonathan King er sakaður um brot gegn níu drengjum. Af Wikipedia

Breski tónlistarmaðurinn Jonathan King mætti fyrir dóm í dag, en hann hefur verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota gegn drengjum. 

Er King sakaður um 18 kynferðisbrot gegn alls níu drengjum á aldrinum 14 til 16 ára. Brotin áttu sér stað á árunum 1970 til 1986. King er 72 ára gamall í dag.

King var skælbrosandi þegar hann gekk út úr réttarsalnum í dag og gaf ljósmyndurum merki með því að setja báða þumlana upp þegar þeir smelltu af honum myndum. Spurður hvernig fyrirtakan hafi gengið sagði hann: „Frábærlega.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert